Lokanir á Landvegi vegna viðhalds
Framkvæmdir við heflun og klæðingu á um tveggja kílómetra kafla Landvegar, frá Kelduholti og norður fyrir afleggjara að Holtsmúla, hefjast þriðjudaginn 12. maí og miðvikudaginn 13. maí. Vegna þessara framkvæmda verður nauðsynlegt að loka viðkomandi v
Framkvæmdir við heflun og klæðingu á um tveggja kílómetra kafla Landvegar, frá Kelduholti og norður fyrir afleggjara að Holtsmúla, hefjast þriðjudaginn 12. maí og miðvikudaginn 13. maí. Vegna þessara framkvæmda verður nauðsynlegt að loka viðkomandi vegkafla fyrir almennri umferð á meðan klæðingarvinna stendur yfir. Umferð verður beint um Bjallaveg og Árbæjarveg á meðan á lokunum stendur. Framkvæmdirnar verða unnar í tveimur áföngum og er áætlað að þeim ljúki á tveimur dögum. Vegkaflinn verður þó opnaður bæði kvöldin til að tryggja flutninga Bergen Spesial fyrir Vaðölduver. Verktaki framkvæmdarinnar er Þjótandi ehf. og sér fyrirtækið einnig um allar vinnusvæðamerkingar. Vegfarendur eru hvattir til að sýna tillitssemi og fylgja merkingum á svæðinu.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Rangárþing ytra
Heimild: Rangárþing ytra