Umferðartafir í Flóahreppi

Malbikunarframkvæmdir standa yfir á Suðurlandsvegi í dag, frá Villingaholtsvegi að Þingborg, austur af Selfossi. Áætlað er að verkið standi frá klukkan 9 til 21 og mun umferðarstýring vera á svæðinu á meðan framkvæmdum stendur. Um 1.400 metra kafli

Umferðartafir í Flóahreppi
Mynd: Tolga Durum / Pexels

Malbikunarframkvæmdir standa yfir á Suðurlandsvegi í dag, frá Villingaholtsvegi að Þingborg, austur af Selfossi. Áætlað er að verkið standi frá klukkan 9 til 21 og mun umferðarstýring vera á svæðinu á meðan framkvæmdum stendur.

Um 1.400 metra kafli verður malbikaður. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir, auk þess að sýna aðgát við vinnusvæðin. Hliðarvegir verða lokaðir á meðan malbikun fer fram framhjá þeim. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Sunnlenska

Heimild: Sunnlenska

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →