Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu og ríkið hefja samstarf um uppbyggingu sérskólaúrræða
Viljayfirlýsing um samstarf um uppbyggingu sérskólaúrræða á höfuðborgarsvæðinu var undirrituð í dag, sem markar upphaf sameiginlegrar vegferðar sveitarfélaganna og ríkisins til að þróa framtíðarsýn og heildstæða uppbyggingu á þessu sviði til lengri t
Viljayfirlýsing um samstarf um uppbyggingu sérskólaúrræða á höfuðborgarsvæðinu var undirrituð í dag, sem markar upphaf sameiginlegrar vegferðar sveitarfélaganna og ríkisins til að þróa framtíðarsýn og heildstæða uppbyggingu á þessu sviði til lengri tíma. Samstarfið miðar að því að tryggja að börn sem þurfa sérskólaúrræði fái þjónustu sem tekur mið af þörfum þeirra og styður við farsæld þeirra, virkni og menntun.
Viljayfirlýsingin byggir á greiningu sem unnin var fyrir Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) um fýsileika aukins samstarfs sveitarfélaganna og ríkisins um sérskólaúrræði. Niðurstöður greiningarinnar sýna að samstarfið er bæði raunhæft og fýsilegt. Þá er talið að með samstilltu átaki sé hægt að byggja upp öflugri, sjálfbærari og fjölbreyttari úrræði fyrir börn með ólíkar stuðningsþarfir.
Meðal þeirra sem undirrituðu viljayfirlýsinguna voru Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra f.h. mennta- og barnamálaráðherra, og Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra. Einnig undirrituðu bæjarstjórar sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, þeirra á meðal Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar, Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs, Valdimar Víðisson bæjarstjóri Hafnarfjarðar og Þóra Margrét Hjaltested bæjarstjóri Mosfellsbæjar. Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri undirritaði einnig samninginn.
Þessi samvinna ríkis og sveitarfélaga er ætluð til að styrkja þjónustu við börn sem þurfa sérstakan stuðning í skólastarfi. Áhersla er lögð á að skapa heildstæða lausn sem tekur mið af fjölbreyttum þörfum nemenda og stuðlar að jöfnum tækifærum til náms og þroska. Með þessu skrefi er stefnt að því að tryggja framtíðaruppbyggingu sérskólaúrræða á höfuðborgarsvæðinu.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Mosfellsbær
Heimild: Mosfellsbær