Skipulag um viðhald og umhirðu hafið á Hólastað
Starfsmenn veitu- og framkvæmdasviðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar hafa hafið skipulagningu á viðhaldi og umhirðu á Hólastað. Um er að ræða svæði sem munu heyra undir sveitarfélagið í kjölfar nýs samkomulags við íslenska ríkið um innviði og uppbyggin
Starfsmenn veitu- og framkvæmdasviðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar hafa hafið skipulagningu á viðhaldi og umhirðu á Hólastað. Um er að ræða svæði sem munu heyra undir sveitarfélagið í kjölfar nýs samkomulags við íslenska ríkið um innviði og uppbyggingu á svæðinu.
Á næstu vikum er stefnt að því að hefja lagfæringar á klæðningu gatna. Jafnframt er skipulagning sláttar og almennrar umhirðu í fullum gangi. Undirbúningur og skipulagning fráveituframkvæmda hefst svo í haust 2026. Sveitarfélagið Skagafjörður mun vinna náið með staðarumsjónarmanni, umsjónarmanni Skólabús og öðrum hagsmunaaðilum á svæðinu.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Sveitarfélagið Skagafjörður
Heimild: Sveitarfélagið Skagafjörður