Ljósleiðaravæðing hafin á Eskifirði og Reyðarfirði
Annar áfangi ljósleiðaravæðingar á vegum Mílu er hafinn á Eskifirði og Reyðarfirði í Fjarðabyggð. Verkefnið felur í sér lagningu ljósleiðara að 493 staðföngum á svæðinu. Á Eskifirði nær verkefnið til 236 staðfanga og hófust framkvæmdir þar mánudagin
Annar áfangi ljósleiðaravæðingar á vegum Mílu er hafinn á Eskifirði og Reyðarfirði í Fjarðabyggð. Verkefnið felur í sér lagningu ljósleiðara að 493 staðföngum á svæðinu.
Á Eskifirði nær verkefnið til 236 staðfanga og hófust framkvæmdir þar mánudaginn 18. maí. VV verktakar annast verkið á Eskifirði og er áætlað að jarðvinnu ljúki þar um 20. júní.
Á Reyðarfirði eru framkvæmdir einnig hafnar og nær verkefnið þar til 257 staðfanga. Rafey ehf. hefur hafið verkið á Reyðarfirði og munu VV verktakar taka við framkvæmdinni þar að loknu verki á Eskifirði. Gert er ráð fyrir að jarðvinnu á Reyðarfirði ljúki fyrir mánaðamótin júlí/ágúst.
Tengingar verða virkjaðar í áföngum frá og með júlí og er stefnt að því að allar tengingar verði virkjaðar fyrir lok ágúst. Áætluð verklok alls verkefnisins eru í byrjun september. Lögð er áhersla á gott samstarf við íbúa og snyrtilega frágang að framkvæmdum loknum. Grétar Ómarsson hjá Mílu veitir nánari upplýsingar um verkefnið.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Fjarðabyggð
Heimild: Fjarðabyggð