Fyrsti hluti af langtímahættumati vegna hraunavár á Reykjanesskaga kominn út
Fyrsti hluti af langtímahættumati vegna hraunavár á Reykjanesskaga kominn út
Fyrstu skýrslur um langtímahættumat vegna hraunavár á Reykjanesskaga hafa verið gefnar út, en þær eru hluti af stóru verkefni Veðurstofunnar sem miðar að því að meta heildstætt eldfjallavá á öllum skaganum. Verkefnið, sem hófst snemma árs 2024 og á að ljúka árið 2027, hefur nú gefið út fjórar skýrslur. Á þessu ári er von á fjórum skýrslum til viðbótar um sprunguvá, tveimur um hraunavá og einni um jarðskjálftavá, en á næsta ári verða gefnar út skýrslur um gjóskufall, gasmengun og grunnvatnsmengun.
Verkefnið er umfangsmikið og í raun einstakt á heimsvísu, enda tekur það saman mat á eldfjallavá fyrir svæði þar sem sjö eldstöðvakerfi, sextán sveitarfélög og fjöldi mikilvægra innviða eru til staðar. Langtímahættumatið vegna hraunavár skilgreinir möguleg gosupptakasvæði og þau svæði sem gætu orðið fyrir hraunflæði, byggt á gossögu svæðisins. Meginmarkmiðið er að draga úr tjóni, sérstaklega á innviðum, og niðurstöðurnar eru mikilvægt innlegg í skipulagningu byggðar og landnýtingar.
Skýrslurnar veita ítarlegar upplýsingar um svæði sem eru útsett fyrir hraunvá og nýtast þeim sem sinna skipulagningu byggðar, rekstraraðilum mikilvægra innviða og viðbragðsaðilum, meðal annars við uppfærslu á viðbragðsáætlunum. Niðurstöðurnar styðja við þekkingu sem þegar var til staðar og umbylta ekki fyrri skilningi á hraunavá á höfuðborgarsvæðinu. Þótt skýrslurnar svari ekki spurningunni um „ásættanlega áhættu“ fyrir búsetu eða starfsemi, veita þær mikilvægar forsendur fyrir slíkt samtal og ákvörðunartöku og verða öflugt tæki í höndum sveitarstjórna við skipulagsmál.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Garðabær
Heimild: Garðabær