Skutulsfjörður - lokað fyrir vatn vegna viðgerðar á vatnsveitu
Vegna viðgerðar á vatnslögn verður lokað fyrir vatn á tjaldsvæði í Tungudal, í sumarbústaðahverfi í Skutulsfirði, í Múlalandi, Seljalandi, Stakkanesi, Miðtúni, Sætúni og á Torfnesi íþróttasvæði. Lokun vatns stendur yfir frá klukkan 13 til klukkan 20,
Vegna viðgerðar á vatnslögn verður lokað fyrir vatn á tjaldsvæði í Tungudal, í sumarbústaðahverfi í Skutulsfirði, í Múlalandi, Seljalandi, Stakkanesi, Miðtúni, Sætúni og á Torfnesi íþróttasvæði. Lokun vatns stendur yfir frá klukkan 13 til klukkan 20, mánudaginn 18. maí 2026.
Áhrifa lokunarinnar ætti ekki að gæta í Menntaskólanum, leikskólanum, sjúkrahúsinu né á Hlíf. Íbúum hefur verið send SMS-tilkynning í gegnum kerfi 1819.is. Skilaboðin berast eingöngu þeim sem eru með skráð símanúmer og heimilisfang hjá 1819.
Þeir sem óska eftir að fá send upplýsingaskeyti þurfa að tryggja að skráning sé til staðar. Til að skrá númer þarf að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum á 1819 og velja „Mín skráning“ undir „Minn aðgangur“. Þar er hægt að setja inn eða uppfæra símanúmer og heimilisfang.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Ísafjarðarbær
Heimild: Ísafjarðarbær