Nýir göngu- og hjólreiðastígar í Grímsnes- og Grafningshreppi
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020–2032 hefur verið kynnt vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar göngu- og hjólreiðastíga meðfram Biskupstungnabraut, Þingvallavegi og Sólheimavegi. Verkefnið, sem er unnið í samvinnu Grím
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020–2032 hefur verið kynnt vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar göngu- og hjólreiðastíga meðfram Biskupstungnabraut, Þingvallavegi og Sólheimavegi. Verkefnið, sem er unnið í samvinnu Grímsnes- og Grafningshrepps og Vegagerðarinnar, gerir ráð fyrir að framkvæmdir hefjist árið 2026. Stígarnir verða malbikaðir til að nýtast sem best til daglegra ferða, útivistar og öruggra samgangna fyrir íbúa, fasteignaeigendur og gesti sveitarfélagsins.
Verkefnið hefur verið í vinnslu síðan 2023 með tilheyrandi valkostagreiningum. Markmiðið er að bæta umferðaröryggi, efla útivist og lýðheilsu, og skapa betri aðstæður fyrir vistvænar samgöngur. Í dag eru takmarkaðir möguleikar til að ganga eða hjóla milli staða í sveitarfélaginu án þess að fara eftir eða mjög nálægt fjölförnum vegum, sérstaklega á Biskupstungnabraut þar sem umferð hefur aukist verulega.
Í aðalskipulagsbreytingunni er gert ráð fyrir stígum á þremur meginleiðum: meðfram Biskupstungnabraut frá Borg að sveitarfélagsmörkum við Ölfus, meðfram Þingvallavegi frá Biskupstungnabraut að Búrfellsvegi, og meðfram Sólheimavegi. Óskað er eftir umsögnum og athugasemdum við tillöguna frá íbúum, fasteignaeigendum, landeigendum, fyrirtækjum og öðrum hagaðilum. Umsögnum skal skila í gegnum Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, mál nr. 2025/1397, eigi síðar en 19. júní.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Grímnes- og Grafningshreppur
Heimild: Grímnes- og Grafningshreppur