Nýtt hjúkrunarheimili og heilsugæsla í Vík
Nýtt hjúkrunarheimili og heilsugæslustöð mun rísa á lóð við Sléttuveg 11 í Vík í Mýrdal, en samkomulag um nýbygginguna var undirritað í dag. Sveitarfélagið úthlutar lóðinni til ríkisins og er ráðgert að þriðji aðili hanni og byggi húsnæðið gegn langt
Nýtt hjúkrunarheimili og heilsugæslustöð mun rísa á lóð við Sléttuveg 11 í Vík í Mýrdal, en samkomulag um nýbygginguna var undirritað í dag. Sveitarfélagið úthlutar lóðinni til ríkisins og er ráðgert að þriðji aðili hanni og byggi húsnæðið gegn langtímaleigusamningi við ríkið.
Nýja hjúkrunarheimilið mun leysa af hólmi Hjallatún, sem opnað var árið 1989 og hýsir í dag 18 hjúkrunarrými. Núverandi húsnæði uppfyllir ekki lengur nútímakröfur um aðbúnað, sérstaklega hvað varðar einstaklingsrými með baðherbergi, og verður nýja heimilið stærra og betur búið.
Heilsugæslan í Vík fær einnig nýtt og nútímalegt húsnæði þar sem núverandi aðstaða er orðin gömul og óhagkvæm til endurbóta. Ákveðið var að sameina hjúkrunarheimilið og heilsugæsluna í einni byggingu til að ná fram samlegðaráhrifum í framkvæmdinni og tryggja hagstæðara leiguverð. Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir mun á næstunni efna til útboðs á verkinu. Þessi framkvæmd er talin marka tímamót í þjónustu við eldra fólk og íbúa Mýrdalshrepps.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Mýrdalshreppur
Heimild: Mýrdalshreppur