Sex umsóknir bárust í hús BSO
Sex umsóknir frá fimm aðilum bárust Akureyrarbæ vegna húss Bifreiðastöðvar Oddeyrar (BSO), sem bærinn bauð til eignar án endurgjalds. Skilyrði er að viðkomandi flytji húsið af lóðinni við Strandgötu á eigin kostnað og ábyrgð fyrir 15. júní, en húsið
Sex umsóknir frá fimm aðilum bárust Akureyrarbæ vegna húss Bifreiðastöðvar Oddeyrar (BSO), sem bærinn bauð til eignar án endurgjalds. Skilyrði er að viðkomandi flytji húsið af lóðinni við Strandgötu á eigin kostnað og ábyrgð fyrir 15. júní, en húsið verður annað hvort flutt eða rifið. Leigubílstjórar BSO keyra nú undir merkjum Hreyfils.
Umsóknirnar verða nú metnar og tillaga um ráðstöfun hússins lögð fyrir næsta fund umhverfis- og mannvirkjaráðs. Í umsóknum þurfti að koma fram hugmynd um nýtingu hússins, hvort það yrði nýtt til almenningsnota og hvar það yrði staðsett. Við mat á tilboðum verður horft til þess hvort húsnæðið verði nýtt til almenningsnota (80%) og fyrirhugaðrar staðsetningar (20%). Skógræktarfélag Eyfirðinga ákvað að senda ekki inn umsókn þar sem félagið taldi sig ekki hafa bolmagn til að standa að flutningi hússins í Kjarnaskóg. Ingólfur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélagsins, staðfesti þessa ákvörðun.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Akureyri.net
Heimild: Akureyri.net