Suðurnesjabær vill undirgöng fyrir gangandi og hjólandi

Framkvæmda- og skipulagsráð Suðurnesjabæjar leggur áherslu á að undirgöng verði notuð til að tengja göngu- og hjólastíga við fyrirhugaða tvöföldun Reykjanesbrautar, á kaflanum milli Hafnavegar og Garðskagavegar. Þessi afstaða kemur fram í umsögn ráðs

Suðurnesjabær vill undirgöng fyrir gangandi og hjólandi
Mynd: parquetn / CC BY-SA / Pexels

Framkvæmda- og skipulagsráð Suðurnesjabæjar leggur áherslu á að undirgöng verði notuð til að tengja göngu- og hjólastíga við fyrirhugaða tvöföldun Reykjanesbrautar, á kaflanum milli Hafnavegar og Garðskagavegar. Þessi afstaða kemur fram í umsögn ráðsins vegna umhverfismatsskýrslu Vegagerðarinnar, þar sem undirgöng eru talin heppilegri lausn en göngubrýr.

Ráðið gerir jafnframt þá kröfu að hæðatakmarkanir á Reykjanesbrautinni verði ekki þannig útfærðar að þær hindri umferð þungaflutninga. Að öðru leyti gerir framkvæmda- og skipulagsráð Suðurnesjabæjar engar athugasemdir við umhverfismat fyrirhugaðrar framkvæmdar.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Víkurfréttir

Heimild: Víkurfréttir

Deila Facebook X LinkedIn