Suðurlandsvegur lokaður vegna malbikunarframkvæmda
Suðurlandsvegur verður lokaður til austurs í dag vegna malbikunarframkvæmda. Umferð á leið til vesturs verður óhindruð en hjáleið verður um Gaulverjabæjarveg fyrir þá sem ætla til austurs.
Suðurlandsvegur verður lokaður til austurs í dag, frá klukkan 7 til 17, vegna malbikunarframkvæmda. Framkvæmdirnar fara fram á annarri akreininni í senn. Umferð á leið til vesturs mun fara meðfram vinnusvæðinu.
Lokað verður til austurs við gatnamót við Gaulverjabæjarveg. Vegfarendur sem ætla til austurs þurfa að fara hjáleið um Gaulverjabæjarveg, Önundarholtsveg og Villingaholtsveg.
Vegfarendur eru hvattir til að virða merkingar og hraðatakmarkanir á svæðinu. Vinnusvæðin eru þröng og starfa menn og tæki nálægt akstursbrautum.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Sunnlenska
Heimild: Sunnlenska