Styrkir í boði fyrir fjölbýli og gististaði

Loftslags- og orkusjóður hefur auglýst styrki til uppbyggingar hleðsluinnviða við fjölbýlishús og gististaði. Húsfélög í fjöleignarhúsum geta sótt um styrki til framkvæmda við sameiginleg bílastæði. Umsóknarfrestur vegna fjölbýlishúsa rennur út í næstu viku.

Styrkir í boði fyrir rafhleðsluinnviði
Mynd: needpix.com (CC0)

Loftslags- og orkusjóður hefur auglýst styrki til uppbyggingar hleðsluinnviða við fjölbýlishús og gististaði. Húsfélög í fjöleignarhúsum geta sótt um styrki til framkvæmda við sameiginleg bílastæði. Umsóknarfrestur vegna fjölbýlishúsa rennur út í næstu viku.

Styrkur til fjölbýlishúsa getur numið allt að 5 milljónum króna á hvert verkefni, þó aldrei meira en 50% af heildarkostnaði. Styrkhæf eru húsfélög í fjöleignarhúsum með átta íbúðir eða fleiri þar sem byggingarleyfi var gefið út fyrir 20. júní 2018. Ekki er veittur styrkur til húsa þar sem hleðslustöðvar hafa þegar verið settar upp á sameiginlegum bílastæðum.

Meðal þess sem hægt er að fá styrk fyrir eru lagnaleiðir frá rafmagnstöflu að hleðsluinnviðum og framkvæmdir við stækkun, færslu eða nýja heimtaug fjölbýlishúss. Umsóknarfrestur vegna uppbyggingar hleðsluinnviða við gististaði er til 15. október.

Hótel og stærri gistiheimili með gilt rekstrarleyfi geta sótt um styrki til uppbyggingar hleðsluinnviða. Styrkur getur numið allt að 33% af styrkhæfum kostnaði, að hámarki einni milljón króna fyrir hvern gististað. Verkefnin þurfa að fela í sér uppsetningu á að minnsta kosti tveimur nýjum hleðslustöðvum, 2x 22 kW, sem þurfa að vera aðgengilegar gestum gististaðarins. Aðeins ný verkefni koma til greina og mega framkvæmdir ekki vera hafnar þegar sótt er um.

→ Lesa upprunalegu fréttina á Akureyri.net

Heimild: Akureyri.net

Deila Facebook X LinkedIn