Stýrivaxtahækkun skilaði sér hratt í dýrari óverðtryggðum lánum
Stýrivaxtahækkun Seðlabankans í lok ágúst hefur þegar skilað sér í hækkun á óverðtryggðum lánum hjá bönkunum, sérstaklega þeim breytilegu. Aðrir vaxtaflokkar hafa að mestu staðið í stað, en fastir verðtryggðir vextir hjá Arion banka hækkuðu umfram stýrivaxtahækkunina.
Stýrivaxtahækkun Seðlabankans sem tilkynnt var 21. ágúst hefur þegar haft áhrif á vexti íslenskra banka. Stóru viðskiptabankarnir þrír hafa allir hækkað breytilega óverðtryggða vexti í samræmi við hækkun Seðlabankans um 0,25 prósentustig.
Breytilegir verðtryggðir vextir hafa hins vegar ekki breyst hjá bönkunum. Sama gildir um fasta óverðtryggða vexti hjá Arion banka og Íslandsbanka, en hjá Landsbankanum hafa þeir annaðhvort staðið í stað eða hækkað um allt að 0,20 prósentustig.
Fastir verðtryggðir vextir hafa hækkað hjá tveimur af bönkunum. Í Landsbankanum hækkuðu þeir um 0,10 prósentustig, sem er minna en helmingur af stýrivaxtahækkun Seðlabankans. Arion banki hækkaði sömu vexti um 0,30 prósent, sem er meira en stýrivaxtahækkunin sjálf.
Heimild: RÚV