Stracta-hótelin sett á sölulista

Hreiðar Hermannsson, stofnandi og eigandi Stracta-hótela, hefur ákveðið að selja bæði hótel fyrirtækisins á Hellu ásamt tengdum rekstri. Hann segist vilja hægja á sér og verja meiri tíma með fjölskyldunni og öðrum hugðarefnum.

Stracta-hótelin sett á sölulista
Mynd: needpix.com (CC0)

Hreiðar Hermannsson, stofnandi og eigandi Stracta-hótela, hefur ákveðið að selja bæði hótel fyrirtækisins á Hellu auk þriggja veitingastaða og iðnaðarþvottahúss sem tengist rekstrinum.

Hreiðar segir í tilkynningu um söluna að hann vilji hægja á sér og verja meiri tíma með fjölskyldunni og öðrum hugðarefnum.

Hótelin tvö eru með samtals 236 herbergi. Til hefur staðið að fjölga herbergjum á Stracta hóteli úr 185 í 409 með fjórum viðbyggingum.

Hótelin voru reist fyrir rúmlega áratug, árið 2014. Auk Hreiðars kom sonur hans, Hermann, að uppbyggingunni í upphafi.

Í tilkynningu um fyrirhugaða sölu segir að Hreiðar hyggist láta hluta ágóðans renna til góðra málefna.

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn