Stórt skref í fráveitumálum í Höfnum
Reykjanesbær hefur tekið í notkun nýja lífræna fráveituhreinsistöð í Höfnum sem hreinsar nú um 80% fráveitu á svæðinu. Stöðin tryggir að vatn sé um 98% hreint áður en því er veitt til sjávar.
Reykjanesbær hefur tekið í notkun nýja lífræna fráveituhreinsistöð í Höfnum. Hún þjónustar um 80% af fráveitu á svæðinu og hreinsar skólp sem áður fór óhreinsað til sjávar.
Stöðin hefur afkastagetu upp á um 22 rúmmetra og er miðuð við um 100 persónueiningar. Eftir hreinsun er vatnið um 98% hreint áður en því er veitt til sjávar.
Hreinsistöðin byggir á WPL HiPAF-tækni sem felur í sér þrjú meginþrep: botnfellingu til að skilja frá föst efni og seyru, lífræna hreinsun með örverum og loftun til að brjóta niður lífræn efni, og lokabotnfellingu.
Iðnver ehf. seldi Reykjanesbæ hreinsistöðina og búnað hennar, en Rekan ehf. var aðalverktaki við uppsetningu og framkvæmdir á staðnum. Meginhluti hreinsistöðvarinnar er neðanjarðar til að draga úr sjónrænum áhrifum.
Hreinsieiningin sjálf er um níu metrar að lengd og tæpir þrír metrar á breidd, auk búnaðar fyrir loftun og stjórnun kerfisins. Þessi framkvæmd markar verulega framför í fráveitumálum á svæðinu og dregur verulega úr mengunarálagi áður en vatninu er veitt til sjávar.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Reykjanesbær
Heimild: Reykjanesbær