👷 Viltu stýra rekstri rafveitu Veitna?
Veitur leita að öflugum leiðtoga til að stýra rekstri rafveitu, sem er á tímamótum vegna orkuskipta og vaxandi byggðar.
Veitur auglýsa eftir öflugum leiðtoga til að stýra rekstri rafveitu. Deildin ber ábyrgð á öruggum og áreiðanlegum rekstri dreifikerfis rafmagns fyrir tugþúsundir heimila og fyrirtækja.
Rafveitan stendur á tímamótum vegna orkuskipta, rafvæðingar samgangna og vaxandi byggðar. Þessar breytingar auka álag á dreifikerfið og kröfur um afhendingaröryggi.
Veitur eru að færa viðhald úr viðbragðsstýringu yfir í fyrirbyggjandi og áhættumiðað verklag. Deildarstjóri rekstrar rafveitu gegnir lykilhlutverki í þeirri vegferð.
Deildin tilheyrir sviðinu Veitukerfi og ber ábyrgð á rekstri, ástandi og afköstum dreifikerfis rafmagns. Þetta felur í sér aðveitustöðvar, dreifistöðvar, há- og lágspennustrengi og tengdan búnað. Í deildinni starfa rekstrarstjórar og sérfræðingar rafveitu.