👷 Verkstjóri rafmagns á Suðurnesjum
HS Veitur leita að verkstjóra rafmagns á Suðurnesjum. Umsóknarfrestur um starfið er til 16. nóvember 2026.
HS Veitur leita að verkstjóra rafmagns á Suðurnesjum. Starfið felur í sér stjórnun framkvæmdaflokka ásamt yfirumsjón með viðgerðum, daglegum rekstri, viðhaldsverkefnum og nýframkvæmdum rafveitukerfa á svæðinu.
Verkstjóri starfar náið með svæðisstjóra að öruggum rekstri dreifiveitunnar og þjónustu við viðskiptavini. Gerð er krafa um góða stjórnunar- og samskiptahæfileika ásamt getu til að leysa krefjandi verkefni.
Umsóknarfrestur um starfið er til 16. nóvember 2026 og er tekið við umsóknum í gegnum Alfred.is.