👷 Verkstjóri á þjónustustöð, Ísafjörður

Vegagerðin auglýsir laust starf verkstjóra á þjónustustöð sinni á Ísafirði. Verkstjóri hefur umsjón og eftirlit með verkefnum á stöðinni og er staðgengill yfirverkstjóra.

👷 Verkstjóri á þjónustustöð, Ísafjörður

Vegagerðin auglýsir eftir verkstjóra á þjónustustöð sína á Ísafirði.

Vegagerðin rekur 18 þjónustustöðvar víðs vegar um landið sem sjá um almenna þjónustu og viðhald vega og vegbúnaðar. Hlutverk þjónustustöðva er að tryggja greiða og örugga umferð allt árið um kring með því að halda vegum, vegsvæðum og samgöngumannvirkjum í góðu ástandi.

Verkstjóri hefur umsjón og eftirlit með verkefnum á þjónustustöðinni og sér til þess að þau séu unnin í samræmi við áætlanir og öryggisstefnu Vegagerðarinnar. Verkstjóri er staðgengill yfirverkstjóra.

Umsóknarfrestur er til 12. október 2026. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og Verkstjórafélags Vestfjarða.

→ Sækja um á Alfred.is

Deila Facebook X LinkedIn