👷 Verkstjóri á þjónustustöð, Patreksfjörður
Vegagerðin auglýsir starf verkstjóra við þjónustustöðina á Patreksfirði. Verkstjóri hefur umsjón og eftirlit með verkefnum á þjónustustöðinni og sér til…
Vegagerðin auglýsir starf verkstjóra við þjónustustöðina á Patreksfirði. Verkstjóri hefur umsjón og eftirlit með verkefnum á þjónustustöðinni og sér til þess að unnið sé í samræmi við áætlanir og öryggisstefnu Vegagerðarinnar. Verkstjóri er staðgengill yfirverkstjóra. Þjónustustöðvar Vegagerðarinnar sjá um almenna þjónustu og viðhald vega og vegbúnaðar á sínu starfssvæði. Hlutverk þjónustustöðva er að tryggja að ástand vega, vegsvæða og samgöngumannvirkja sé þannig að umferð gangi greiðlega og örugglega fyrir sig, allan ársins hring. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og Verkstjórafélags Vestfjarða. Umsóknarfrestur er til 22. júní 2026.
| 🏢 Fyrirtæki: | Vegagerðin |
| 📍 Staðsetning: | |
| 📅 Umsóknarfrestur: | 22. jún 2026 |
| 📌 Heimild: | Alfred.is |