👷 Verkefnastjóri fasteigna og framkvæmda
Six Rivers Iceland leitar að verkefnastjóra fasteigna og framkvæmda á Vopnafirði til að hafa umsjón með umfangsmiklum uppbyggingar- og framkvæmdaverkefnum.
Six Rivers Iceland auglýsir eftir verkefnastjóra fasteigna og framkvæmda á Vopnafirði.
Starfið felur í sér eftirfylgni með umfangsmiklum uppbyggingar- og framkvæmdaverkefnum, þar á meðal nýbyggingum við Hofsá og Hafralónsá. Verkefnastjórinn mun sinna reglulegu eftirliti með framkvæmdum, tryggja yfirsýn yfir framvindu, kostnað og næstu skref.
Jafnframt mun verkefnastjórinn hafa umsjón með fasteignum, tækjum og ökutækjum félagsins og taka þátt í gerð og eftirfylgni fjárfestinga- og viðhaldsáætlana.
Um er að ræða 100% tímabundið starf til tveggja ára, með möguleika á framlengingu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.