🔩 Stálsmiður/vélvirki/ málmsuða
Suðulist leitar að reynslumiklum stálsmið/vélvirkja með þekkingu á málmsuðu (Mig-Tig). Starfið er beintengt byggingariðnaði og mannvirkjagerð.
Suðulist, rótgróið fyrirtæki sem býður upp á víðtæka þjónustu í öllu sem viðkemur stáli, smíði og uppsetningum, óskar eftir reynslumiklum stálsmið/vélvirkja með þekkingu á málmsuðu (Mig-Tig).
Fyrirtækið sérhæfir sig í hönnun, sérsmíði og uppsetningu. Starfið felur í sér handverk sem er beintengt byggingariðnaði og mannvirkjagerð.
Umsækjendur þurfa að vera með íslenska kennitölu. Áhugasamir eru beðnir um að senda ferilskrá og sveinsbréf á sudulist@sudulist.is.