👷 Sérfræðingur á tæknideild á Norðursvæði
Vegagerðin auglýsir eftir sérfræðingi á tæknideild Norðursvæðis til að sinna hönnun og undirbúningi vegaframkvæmda. Starfið felst í hönnun og hönnunarstjórn…
Vegagerðin auglýsir eftir sérfræðingi á tæknideild Norðursvæðis til að sinna hönnun og undirbúningi vegaframkvæmda. Starfið felst í hönnun og hönnunarstjórn vegamannvirkja, gerð kostnaðaráætlana og útboðsgagna. Tæknideild Norðursvæðis ber ábyrgð á hönnun og undirbúningi verkefna í nýframkvæmdum, viðhaldi og öryggisaðgerðum á svæðinu frá Holtavörðuheiði að Biskupshálsi og upp á miðhálendi. Starfsstöðin er á Akureyri eða Sauðárkróki. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og Verkfræðingafélags Íslands.
| 🏢 Fyrirtæki: | Vegagerðin |
| 📍 Staðsetning: | |
| 📅 Umsóknarfrestur: | 26. maí 2026 |
| 📌 Heimild: | Alfred.is |