👷 Sérfræðingur í opinberum innkaupum

Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir (FSRE) leitar að sérfræðingi í opinberum innkaupum til að sinna ráðgjöf og vinna að útboðsmálum vegna framkvæmdaverkefna stofnunarinnar. Árlegt umfang verkefna er um 20 milljarðar króna.

👷 Sérfræðingur í opinberum innkaupum

Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir (FSRE) auglýsir eftir sérfræðingi í opinberum innkaupum. Starfsmaðurinn mun taka þátt í útboðsmálum vegna framkvæmdaverkefna stofnunarinnar.

Í starfi sérfræðingsins felst ráðgjöf, val á innkaupaleið, gerð útboðsgagna, mat á tilboðum og undirbúningur samningsgerðar. Starfið er hluti af útboðsteymi á þjónustusviði og felur í sér samstarf við önnur svið FSRE.

Árlegt umfang verkefna sem tengjast starfinu er um 20 milljarðar króna. FSRE leitar að lausnamiðuðum, nákvæmum og framsæknum einstaklingi með þekkingu og áhuga á opinberum innkaupum.

→ Sækja um á Alfred.is

Deila Facebook X LinkedIn