👷 Reyndur Iðnverkamaður óskast
RST Net ehf. leitar að reynslumiklum iðnverkamanni, vélvirkja, vélfræðingi eða smið til starfa við verkefni um land allt. Umsóknarfrestur er til 30. nóvember 2026.
RST Net ehf. leitar að reynslumiklum iðnverkamanni, vélvirkja, vélfræðingi eða smið til starfa við verkefni um allt land.
Helstu verkefni felast í uppsetningu á búnaði, viðgerðum og þjónustu fyrir raforkuframleiðendur, veitur og stórnotendur.
Gerð er krafa um langa starfsreynslu í iðnaði ásamt áralangri reynslu af þjónustu og viðgerðum á tækjum og búnaði. Einnig er krafist sjálfstæðra og vandvirkra vinnubragða, ríkrar þjónustulundar, bílprófs og góðrar íslenskukunnáttu í mæltu og rituðu máli.
Umsóknarfrestur er til 30. nóvember 2026 og er sótt um starfið á vefnum Alfred.is.