⚡ Rafvirki / Rafeindavirki til starfa í Tæknideild
Nortek leitar að rafvirkja eða rafeindavirkja til starfa í tæknideild fyrirtækisins. Starfið felur í sér uppsetningu, þjónustu og viðhald á öryggis- og eftirlitslausnum.
Nortek auglýsir eftir rafvirkja eða rafeindavirkja til starfa í tæknideild fyrirtækisins.
Starfið felur í sér uppsetningu, þjónustu og viðhald á öryggis- og eftirlitslausnum.
Umsækjandi þarf að búa yfir reynslu af sambærilegum störfum, vera lipur í mannlegum samskiptum, sýna frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð. Einnig er óskað eftir einstaklingi með ríka þjónustulund sem tekur ábyrgð á verkefnum.
Starfið krefst samskipta við viðskiptavini og náið samstarf við tæknimenn.
Umsóknarfrestur er til 31. ágúst 2026.