🔧 Pípari / Plumber
JBÓ Pípulagnir ehf. óskar eftir pípulagningarmeistara, pípulagningarsveini, reynslumiklum pípara eða vönum manni í byggingarvinnu vegna aukinna verkefna.…
JBÓ Pípulagnir ehf. óskar eftir pípulagningarmeistara, pípulagningarsveini, reynslumiklum pípara eða vönum manni í byggingarvinnu vegna aukinna verkefna. Starfið felur í sér uppsetningu, viðhald og viðgerðir á pípulögnum, greiningu bilana og framkvæmd varanlegra úrbóta. JBÓ þjónustar einstaklinga, fyrirtæki, verslanir, hús- og bæjarfélög í nýframkvæmdum, viðhaldi og neyðarþjónustu. Umsækjandi þarf að vera sjálfstæður í vinnubrögðum, lausnamiðaður og traustur í samskiptum. Áhersla er lögð á fagmennsku, góða þjónustulund og áreiðanleika. Starfið er 100% og möguleiki er á yfirvinnu. Aðalhöfuðstöðvar JBÓ eru í Reykjanesbæ og starfsaðstaða í Þorlákshöfn.
| 🏢 Fyrirtæki: | JBÓ Pípulagnir ehf. |
| 📍 Staðsetning: | |
| 📅 Umsóknarfrestur: | 5. jún 2026 |
| 📌 Heimild: | Alfred.is |