🏗️ Starfstækifæri í jarðhitaborunum
Vilt þú starfa í spennandi og krefjandi umhverfi þar sem öryggi, fagmennska og samvinna eru í fyrirrúmi? Við leitum að öflugum og ábyrgum einstaklingum til s…
Vilt þú starfa í spennandi og krefjandi umhverfi þar sem öryggi, fagmennska og samvinna eru í fyrirrúmi? Við leitum að öflugum og ábyrgum einstaklingum til starfa við jarðhitaboranir. Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir verkstjóra, vaktformanni, aðstoðarborara, karmenn og pallmenn sem vilja taka þátt í krefjandi verkefnum og starfa með reynslumiklu fagfólki í öflugum alþjóðlegum rekstri. Við leitum að einstaklingum sem: - Hafa sterka öryggisvitund og jákvætt viðhorf til öryggismála. - Eru ábyrgir, lausnamiðaðir og hafa frumkvæði. - Geta unnið vel í teymi við krefjandi aðstæður. - Búa yfir góðri samskipta- og samstarfshæfni. - Hafa góða enskukunnáttu. - Vilja taka þátt í stöðugri þróun og umbótum í starfi. ---------------------------------------------------------------------------------------- Verkstjóri (Toolpusher) Verkstjóri stjórnar borverkefnum í samræmi við samninga, verkáætlanir og verklagsreglur fyrirtækisins. Starfið krefst öflugs leiðtoga sem getur stýrt teymi, tryggt skilvirkan rekstur og viðhaldið ströngum öryggisstöðlum. Hæfniskröfur - Að lágmarki fimm ára reynsla sem verkstjóri (Toolpusher) á bor. - Reynsla af Drillmec-borum og/eða Bentec Euro Rig borum er æskileg. - Gild IWCF Well Control réttindi, stig 4. - Framúrskarandi leiðtogahæfni og reynsla af stjórnun starfsmanna. - Mjög góð skipulagshæfni. - Sterk samskiptafærni og mjög góð enskukunnátta. - Hæfni til að leysa vandamál og taka ákvarðanir undir álagi. ---------------------------------------------------------------------------------------- Vaktformaður (Driller) Vaktformaður er hópstjóri vaktarinnar og ábyrgist miðlun upplýsinga milli verkstjóra og annara starfsmanna á vaktinni. Vaktformaður gegnir lykilhlutverki í borverki, leiðbeinir og stýrir starfsfólki þannig að borframkvæmdir gangi örugglega og skilvirkt fyrir sig. Hæfniskröfur - Að lágmarki þriggja ára reynsla sem borari við jarðhitaboranir. - Reynsla af Drillmec-borum og/eða Bentec Euro Rig 350 er æskileg. - Gild IWCF Well Control réttindi, stig 3. - Reynsla af vaktstjórn eða stjórnun hóps er kostur. - Góð leiðtogahæfni og hæfni til að leiðbeina starfsfólki. - Lyftararéttindi fyrir 10 tonna lyftara eða stærri eru kostur. - Mjög góð enskukunnátta. ---------------------------------------------------------------------------------------- Aðstoðarborari (Assistant Driller) Aðstoðarborari starfar náið með vaktformanni og leysir hann af eftir atvikum. Aðstoðarborari tekur þátt í almennum störfum við borframkvæmdir, uppsetningu búnaðar, eftirliti með verkferlum og almennum rekstri á borstað. Starfið krefst frumkvæðis, góðrar samvinnu og ríkrar áherslu á öryggi. Hæfniskröfur - Að lágmarki tveggja ára reynsla sem aðstoðarborari er mjög æskileg. - Reynsla af Drillmec- eða Bentec-borum er mjög æskileg. - IWCF Well Control vottun á stigi 1 eða 2 er nauðsynleg. - Reynsla sem kar- mastursmaður (Derrickman) er kostur. - Lyftararéttindi fyrir 10 tonna lyftara eða stærri eru kostur. - Mjög góð enskukunnátta. ---------------------------------------------------------------------------------------- Kar- mastursmaður (Derrickman) Kar- mastursmaður gegnir mikilvægu hlutverki í daglegum rekstri borsins og vinnur náið með borara og aðstoðarborara. Starfið felur meðal annars í sér meðhöndlun borstanga og annars borbúnaðar, umsjón með borvökva ásamt þátttöku í daglegu viðhaldi og rekstri borsins. Starfið krefst góðrar öryggisvitundar, nákvæmni og hæfni til að starfa við krefjandi aðstæður. Hæfniskröfur - Reynsla af Drillmec- og/eða Bentec-borum er kostur. - Reynsla af störfum sem kar- masturmaður (Derrickman) eða sambærileg reynsla úr borrekstri er æskileg. - Lyftararéttindi fyrir 10 tonna lyftara eða stærri eru kostur. - Mjög góð enskukunnátta. ---------------------------------------------------------------------------------------- Pallmaður (Almenn störf við borframkvæmdir) Við leitum að öflugum og ábyrgum einstaklingum í almenn störf við borframkvæmdir. Starfið hentar þeim sem hafa áhuga á að starfa í krefjandi og spennandi umhverfi þar sem öryggi, samvinna og fagmennska eru í fyrirrúmi. Hæfniskröfur - Reynsla af störfum við borframkvæmdir er æskileg en ekki skilyrði. - Vinnuvélaréttindi J og K eru skilyrði. - Meirapróf er kostur. - Mjög góð enskukunnátta. ---------------------------------------------------------------------------------------- Einungis er um að ræða vaktavinnu. Hver vakt er 12 tímar og ýmist unnið á dag- eða næturvöktum. Við vinnu erlends er unnið í lengri úthöldum. Jarðboranir veita nýju starfsfólki góðan stuðning og þjálfun í starfi og hvetja ungt fólk til að sækja um. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Í anda jafnréttisstefnu okkar hvetjum við öll þau sem uppfylla hæfniskröfur til að sækja um, óháð kyni.
| 📍 Staðsetning: | — |
| 📌 Heimild: | hy.is |