🏗️ Rennismiður með reynslu af CNC rennibekkjum og fræsivélum
Héðinn óskar eftir reynslumiklum rennismið til starfa á CNC rennibekkjum og fræsivélum í Hafnarfirði. Áhersla er lögð á gott skipulag og skýr samskipti á verkstæðinu.
Héðinn leitar að rennismið með reynslu og þekkingu til starfa á CNC rennibekkjum og fræsivélum.
Á renniverkstæðinu starfar átta manna teymi við fjölbreytt verkefni á manual rennibekkjum, CNC rennibekkjum og fræsivélum. Aðstaðan er stórglæsileg og verkefnin fjölbreytt, þar sem enginn dagur er eins.
Með nýjum verkstjóra eru áherslur á gott skipulag, skýr samskipti og að starfsfólk hafi svigrúm til að nýta þekkingu sína og þróast í starfi. Við leitum að öflugri viðbót í teymið sem getur unnið sjálfstætt á fræsivélum og CNC rennibekkjum.
Áhugasamir sæki um á Alfreð eða hafi samband við Óttar verkstjóra á atvinna@hedinn.is. Við höfum nýlega tekið við glæsilegum, nýjum rennibekk.
Staðsetning: Hafnarfjörður. Heimild: hy.is.