🏗️ Ert þú framúrskarandi í flísalögn ?
Vegna áframhaldandi vaxtar og aukinna verkefna leitar MT Ísland ehf. að reynslumiklum flísara. Við leitum að faglegum, sjálfstæðum og metnaðarfullum einstakl…
Vegna áframhaldandi vaxtar og aukinna verkefna leitar MT Ísland ehf. að reynslumiklum flísara. Við leitum að faglegum, sjálfstæðum og metnaðarfullum einstakling sem vill verða hluti af öflugu teymi þar sem lögð er áhersla á gæði, fagmennsku og góðan starfsanda. Æskilegt er að viðkomandi hafi framúrskarandi meðmæli og geti hafið störf sem fyrst. MT Ísland ehf. er leiðandi þjónustufyrirtæki á sviði tjónaviðgerða og rakaskemmda með starfsstöð í Kópavogi. Fyrirtækið sérhæfir sig í greiningu, viðgerðum og enduruppbyggingu fasteigna eftir tjón af völdum raka og myglu auk þess að sinna fjölbreyttum verkefnum sem tengjast vatns og brunatjónum fyrir tryggingafélög. Hjá MT Ísland færð þú tækifæri til að vinna að fjölbreyttum og krefjandi verkefnum með reynslumiklu teymi þar sem öryggi, fagmennska og vönduð vinnubrögð eru höfð að leiðarljósi.
| 📍 Staðsetning: | Kópavogur |
| 📌 Heimild: | hy.is |