🏗️ Áreiðanleikafræðingur

Norðurál leitar að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi í starf áreiðanleikafræðings. Eitt af meginhlutverkum áreiðanleikafræðings er að vinna að fyrirbygg…

🏗️ Áreiðanleikafræðingur

Norðurál leitar að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi í starf áreiðanleikafræðings. Eitt af meginhlutverkum áreiðanleikafræðings er að vinna að fyrirbyggjandi aðgerðum til að auka áreiðanleika búnaðar og halda bilunum í lágmarki með öryggi, skilvirkni og hagkvæmni að leiðarljósi. Verkefnin eru áhugaverð og krefjandi í lifandi starfsumhverfi þar sem metnaður og fagmennska eru í fyrirrúmi. Starfið heyrir undir tæknisvið fyrirtækisins. Sótt er um starfið á nordural.is. Umsóknarfrestur er til og með 28. október. Með umsókn skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi. Við leggjum áherslu á heilsusamlegt, öruggt og ánægjulegt starfsumhverfi og góðan starfsanda. Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um. Starfsstöðin er á Grundartanga, en starfsfólki bjóðast ferðir til og frá Akranesi, Borgarnesi og af höfuðborgarsvæðinu. Nánari upplýsingar veitir Hafdís Mjöll Lárusdóttir, sérfræðingur mannauðssviðs, hafdisml@nordural.is. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.


📍 Staðsetning:Akranes
📌 Heimild:hy.is

→ Sækja um á hy.is

Deila Facebook X LinkedIn