🔧 Aðstoðarmaður á pípulagningaverkstæði
Tæknideild Landspítala leitar að öflugum og jákvæðum aðstoðarmanni til starfa á pípulagningaverkstæði. Starfið felur í sér fjölbreytt viðhald og minni framkvæmdir á stærstu heilbrigðisstofnun landsins.
Tæknideild Landspítala óskar eftir öflugum og jákvæðum aðstoðarmanni til starfa á pípulagningaverkstæði spítalans.
Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf í öflugu teymi pípara sem sinna viðhaldi og minni framkvæmdum á stærstu heilbrigðisstofnun landsins.
Á einingunni starfa um átta manns auk verktaka og nú leitum við að ábyrgum einstaklingi sem hefur áhuga á handverki, viðhaldi og skipulögðu vinnuumhverfi.
Landspítali er um 170.000 fermetrar og innviðir hans fela í sér umfangsmikil lagnakerfi og tæki sem krefjast reglubundins viðhalds.
Um er að ræða 100% starf og er það laust nú þegar eða eftir samkomulagi.