🪚 Húsasmiður
Byggingafélagið Laski leitar að reyndum og sjálfstæðum húsasmið til starfa. Fyrirtækið hefur starfað í 25 ár og sinnir fjölbreyttum verkefnum í viðhaldi og endurbótum á fasteignum.
Byggingafélagið Laski leitar að reyndum og sjálfstæðum húsasmið til starfa.
Laski er 25 ára gamalt fyrirtæki sem sinnir fjölbreyttum verkefnum í viðhaldi og endurbótum á fasteignum.
Umsækjandi þarf að geta unnið sjálfstætt, vera vandvirkur, samviskusamur og lausnamiðaður. Einnig er krafist stundvísi, góðrar þjónustulundar og gilds bílprófs.
Áhugasamir eru hvattir til að sækja um sem fyrst í tölvupósti á laski@laski.is. Umsóknarfrestur er til 10. september 2026.