👷 Húsasmíðameistari – Umhverfis- og skipulagssvið
Hafnarfjarðarbær leitar að húsasmíðameistara til starfa hjá Þjónustumiðstöð bæjarins. Starfið felur í sér umsjón og viðhald leiktækja og timburverka á opnum svæðum.
Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir húsasmíðameistara til starfa hjá Þjónustumiðstöð bæjarins.
Starf húsasmíðameistara felur í sér umsjón, eftirlit, viðhald og viðgerðir á leiktækjum á leikvöllum bæjarins. Húsasmíðameistarinn mun einnig koma að umsjón, eftirliti, viðhaldi og viðgerðum á timburverki á opnum svæðum, svo sem girðingum, útibekkjum, göngubrúm, tröppum og pöllum.
Auk þess mun húsasmíðameistarinn sinna nýsmíði á opnum svæðum og stofnanalóðum, gera verðkannanir og leita eftir tilboðum. Um er að ræða 100% starf.