👷 Deildarstjóri umsjónardeildar á Austursvæði
Vegagerðin leitar að deildarstjóra umsjónardeildar á Austursvæði. Starfið felur í sér verkefnastýringu nýframkvæmda og viðhalds á starfssvæði…
Vegagerðin leitar að deildarstjóra umsjónardeildar á Austursvæði. Starfið felur í sér verkefnastýringu nýframkvæmda og viðhalds á starfssvæði Vegagerðarinnar á Austursvæði. Umsjónardeild ber ábyrgð á umsjón og eftirliti með framkvæmdum á svæðinu. Í samráði við mannvirkjasvið sinnir deildin viðhaldi bundinna slitlaga, styrkingum og endurbótum ásamt efnisvinnslu á svæðinu. Svæðismiðstöð Vegagerðarinnar er á Reyðarfirði og hægt verður að nýta starfsaðstöðu þjónustustöðvarinnar í Fellabæ. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi. Umsóknarfrestur er til 18. maí 2026.
| 🏢 Fyrirtæki: | Vegagerðin |
| 📍 Staðsetning: | |
| 📅 Umsóknarfrestur: | 18. maí 2026 |
| 📌 Heimild: | Alfred.is |