👷 Cost Controller
Verne Global leitar að reyndum Cost Controller til að sinna fjárhagslegri og viðskiptalegri stjórnun gagnaversframkvæmdar. Starfið felur í sér kostnaðareftirlit og utanumhald fjárhagsáætlana, spáa og sjóðstreymis.
Verne Global óskar eftir að ráða reynslumikinn einstakling í starf Cost Controller til að styðja við fjárhagslega og viðskiptalega stjórnun gagnaversframkvæmdar.
Starfið felur í sér kostnaðareftirlit á framkvæmdastað og utanumhald með fjárhagsáætlunum, kostnaðarspám, sjóðstreymi, breytingum, kröfum og fjárhagslegri áhættu á öllum stigum verkefnisins. Viðkomandi mun einnig yfirfara greiðslubeiðnir og reikninga.
Framkvæmdin er unnin samkvæmt FIDIC Yellow Book hönnunar- og verktakasamningi. Umsóknarfrestur er 8. september 2026.