👷 Byggingatæknifræðingur
Verksýn leitar að byggingartæknifræðingi til að sinna fjölbreyttum verkefnum sem tengjast mannvirkjum, hönnun, kostnaðaráætlunum og verkefnastjórnun.
Verksýn óskar eftir að ráða byggingartæknifræðing til að sinna fjölbreyttum verkefnum.
Helstu verkefni verða ástandsgreiningar á mannvirkjum, hönnun endurbóta, umsjón með verk- og kostnaðaráætlunum, gerð útboðs- og verklýsinga, verkefnastjórnun, undirbúningur og skipulag, almenn framkvæmdaráðgjöf og eftirlit.
Einnig felur starfið í sér samskipti við verkkaupa, verktaka og aðra hagsmunaaðila.
Krafist er menntunar á sviði byggingartæknifræði. Aðilar með skylda menntun eins og byggingafræði, iðnfræði, arkitektúr, verkfræði eða reynslumiklir iðnmeistarar koma einnig til greina.
Reynsla af verkefnastjórnun á sviði framkvæmda er kostur, sem og iðnmenntun.
Umsóknarfrestur er til 1. október 2026.