👷 Bifvélavirki óskast á vörubifreiða verkstæði Krafts

Kraftur ehf. auglýsir eftir bifvélavirkja á vörubifreiðaverkstæði sitt. Starfið felur í sér viðgerðir og standsetningar á vörubifreiðum frá MAN.

👷 Bifvélavirki óskast á vörubifreiða verkstæði Krafts

Kraftur ehf. óskar eftir bifvélavirkja á vörubifreiðaverkstæði sitt.

Starfið felst í viðgerðum og standsetningum á vörubifreiðum frá MAN. Kraftur er umboðsaðili MAN á Íslandi og sér um sölu og þjónustu á vörubifreiðum, hópbifreiðum og sendibílum. Fyrirtækið er einnig með umboð fyrir KH-Kipper ábyggingar, Palfinger krana og Bucher götusópa.

Starfstöð Krafts er á Vagnhöfða 1-3, en síðar á árinu 2026 mun fyrirtækið flytja höfuðstöðvar sínar í nýtt húsnæði að Álhellu 9 í Hafnarfirði og opna minna verkstæði að Vagnhöfða 5. Um 100% framtíðarstarf er að ræða.

Gunnar Andri, verkstæðisformaður, veitir nánari upplýsingar.

→ Sækja um á Alfred.is

Deila Facebook X LinkedIn