Stór áfangi í þróun ofurheits jarðhita
Orkuveitan hefur undirritað samning við Jarðboranir hf. um borun fyrstu rannsóknarholunnar í þriðja áfanga rannsóknarverkefnisins IDDP á Nesjavöllum, sem miðar að því að hagnýta ofurheitan jarðhita.
Orkuveitan hefur tekið mikilvægt skref í þróun ofurheitrar jarðhitavinnslu með undirritun samnings við Jarðboranir hf. um borun fyrstu rannsóknarholunnar í þriðja áfanga rannsóknarverkefnisins IDDP (Iceland Deep Drilling Project) á Nesjavöllum. Stefnt er að því að hefja borun síðar á þessu ári.
Verkefnið miðar að því að nýta jarðhita við mun hærra hitastig og þrýsting en þekkist í hefðbundnum vinnsluholum. Takist þetta gæti hver hola skilað margfalt meiri orku en nú er mögulegt, sem myndi auka skilvirkni og sjálfbærni jarðhitavinnslu til framtíðar. Tvær djúpborunarholur hafa þegar verið boraðar innan verkefnisins og lagt grunn að þeirri þekkingu sem nú er byggt á.
Hera Grímsdóttir, framkvæmdastýra rannsókna og nýsköpunar hjá Orkuveitunni, segir að undirritun samningsins marki upphaf framkvæmda við einn metnaðarfyllsta rannsóknaráfanga í sögu íslenskrar jarðhitanýtingar. Hún bætir við að borun IDDP-3 sé lykilskref í djúpnýtingaráætlun Orkuveitunnar. Áhugi á ofurheitum jarðhita hefur aukist verulega á alþjóðavettvangi og framfarir í bor-, mæli- og efnistækni auka líkur á öruggri og hagkvæmri nýtingu slíkra auðlinda.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Sunnlenska
Heimild: Sunnlenska