„Stór áfangi í stóru verki“
Ný brú yfir Breiðholtsbraut hefur verið opnuð fyrir bílaumferð, en framkvæmdir halda áfram og gætu valdið tafir næstu vikur. Brúin tengir saman Jaðarsel í Reykjavík og Vatnsendahvarf í Kópavogi.
Snemma í gærmorgun var opnað fyrir bílaumferð yfir nýja brúna sem liggur yfir Breiðholtsbraut. Brúin tengir saman Jaðarsel í Reykjavík og Vatnsendahvarf í Kópavogi. Vegurinn var lokaður frá því á fimmtudagskvöld vegna undirbúnings fyrir umferðarflutninga.
Framkvæmdir standa enn yfir og gætu því orðið tafir á umferð næstu vikur. Bryndís Friðriksdóttir, svæðisstjóri Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að opnun brúarinnar sé stór áfangi í stóru verki. Framkvæmdir hafa staðið yfir síðan í september 2023 og miða að því að tengja Arnarnesveginn frá Breiðholtsbraut við Austurkór og Rjúpnaveg í Kópavogi.
Heimild: RÚV