Stöðva þéttingaráform við Sóleyjarrima
Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur hefur samþykkt að hætta við fyrirhugaða íbúðabyggð á Sóleyjatúni í Grafarvogi. Ákvörðunin er í samræmi við stefnu meirihlutans um að skoða ný tækifæri í samráði við íbúa.
Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur hefur samþykkt að falla frá frekari vinnu við fyrirhugaða íbúðabyggð á túni við Sóleyjarima í Grafarvogi, sem gengur undir nafninu Sóleyjatún.
Á fundi ráðsins í september 2024 voru lagðar fram tillögur að nýrri íbúðabyggð á túninu og samþykkt að vinna áfram með tillögur arkitektastofunnar Esju. Ráðið hefur nú falið umhverfis- og skipulagssviði að loka málinu.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins í ráðinu segja ákvörðunina tekna í samræmi við stefnu meirihlutans og vísa í verkefnalista hans þar sem segir: „Við ætlum að falla frá fyrirhugaðri þéttingu í Grafarvogi og skoða ný tækifæri í samráði við íbúa.“
Í bókun meirihlutans segir: „Meirihlutinn leggur áherslu á að næstu skref í húsnæðisuppbyggingu í Grafarvogi verði mótuð í raunverulegu samráði við íbúa og að leitað verði nýrra og hentugri uppbyggingartækifæra þar sem tekið er tillit til grænna svæða, skólastarfs, innviða og gæða nærumhverfis.“
Fulltrúar Samfylkingarinnar í ráðinu harma það að meirihlutinn leggist gegn frekari uppbyggingu í Grafarvogi og lýsa yfir þungum áhyggjum af frestun uppbyggingaráforma á höfuðborgarsvæðinu.
„Börnum í Grafarvogi hefur fækkað um 2000 frá aldamótum og gríðarlega mikilvægt er fá fram lýðfræðilegar breytingar í hverfinu svo nýta megi innviði hverfisins á skilvirkari vegu,“ segir í bókun þeirra.
Áheyrnarfulltrúi Vinstri grænna tekur í sama streng og segir íbúðir vanta fyrir fólk sem vill minnka við sig.
Ráðið samþykkti einnig í gær að fela umhverfis- og skipulagssviði að yfirfara fyrirhugaða uppbyggingu og þéttingu byggðar við Starengi og Hverafold í Grafarvogi. Sviðinu var falið að leggja fram tillögur um breytingar á skipulagi sem „taka mið af sjónarmiðum íbúa, áhrif
Heimild: RÚV