Stefna á opnun nýrrar N1 stöðvar á Akranesi í vor
Ný þjónustustöð N1 hefur hafið eldsneytisafgreiðslu á Akranesi. Unnið er að uppsteypu sjálfvirkrar bílaþvottastöðvar og verða hraðhleðslustöðvar fyrir rafbíla einnig settar upp.
N1 hefur hafið eldsneytisafgreiðslu á nýrri þjónustustöð við Elínarveg á Akranesi, skammt frá Hausthúsatorgi.
Þetta er fyrsti áfanginn í uppbyggingu þjónustumiðstöðvar sem mun bjóða upp á víðara þjónustuframboð en eingöngu eldsneytisafgreiðslu.
Nú er unnið að uppsteypu sjálfvirkrar bílaþvottastöðvar á svæðinu. Á stöðinni er nú þegar hægt að dæla 95 oktana bensíni, dísilolíu (litaðri og ólitaðri), AdBlue og rúðuvökva.
Sérstaklega hefur verið hugað að aðgengi stærri ökutækja, svo sem vörubíla og vinnuvéla, til að þjóna bæði almenningi og atvinnulífinu á Akranesi og nærsveitum.
Öflugar hraðhleðslustöðvar fyrir rafbíla munu bætast við á nýju ári.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Skessuhorn
Heimild: Skessuhorn