Stefna á að opna nýju böðin í sumar
Eigendur Reykjabaðanna í Hveragerði vonast til að geta opnað nýju böðin í ágúst eða september. Framkvæmdir hafa staðið yfir frá árinu 2024 og verða böðin fyrsti áfangi í stórri uppbyggingu á Árhólmasvæðinu.
Eigendur Reykjabaðanna í Hveragerði stefna að því að opna nýju böðin í ágúst eða september. Framkvæmdir við böðin, sem eru fyrsti áfangi í umfangsmikilli ferðaþjónustuuppbyggingu á Árhólmasvæðinu við rætur Reykjadals, hafa staðið yfir frá árinu 2024. Samkvæmt tilkynningu frá september 2024 mun allt ferðaþjónustusvæðið telja um 11 þúsund fermetra.
Á næstu dögum verður einnig hafin uppsetning fimmtán hótelbústaða á svæðinu. Bústaðirnir koma fullbúnir til landsins með flutningaskipi og verða fluttir frá Þorlákshöfn til Hveragerðis í byrjun næstu viku. Eftir það þarf að koma þeim fyrir á grunni og tengja við nauðsynlegar lagnir og rafmagn. Gert er ráð fyrir að fleiri bústaðir gætu bæst við síðar.
Hljóðvegur 1 heimsótti svæðið nýverið og fékk að kynna sér gang framkvæmdanna og hvernig böðin munu líta út að loknu verki. Brynjólfur J. Baldursson, einn af eigendum Reykjabaðanna, tók á móti Hólfríði Maríu og fór yfir stöðuna. Viðtal við Brynjólf er hægt að hlusta á í spilaranum hér fyrir neðan.
Heimild: RÚV