Starf í nýjum leikskóla hefst í næstu viku
Starfsemi hefst í nýja leikskólanum Hagasteini við Naustagötu á Akureyri í næstu viku, en framkvæmdum við húsið er að mestu lokið. Bæjarstjórinn heimsótti starfsfólk í dag þar sem undirbúningur fyrir opnun stendur yfir.
Framkvæmdum við nýja leikskólann Hagastein við Naustagötu í Hagahverfi á Akureyri er að mestu lokið og hefst starfsemi þar í næstu viku.
Bæjarstjórinn, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, heimsótti starfsfólk leikskólans í morgun þar sem undirbúningur fyrir opnun stendur yfir. Lóðafrágangur hefur gengið samkvæmt áætlun og er nú unnið að því að ljúka síðustu handtökum áður en skólastarfið hefst.
Aðlögun hefst hjá 20 börnum í þremur deildum leikskólans í næstu viku. Í miðjum september verður fjórða deildin tekin í notkun, ásamt sal, annarri forstofu og eldhúsi. Fram að þeim tíma verður matur eldaður annars staðar og fluttur í leikskólann.
Sá hluti útisvæðisins sem verður tekinn í notkun við opnun er tilbúinn, afgirtur og öruggur. Þrátt fyrir að einhverjar framkvæmdir haldi áfram á öðrum svæðum í kring verður lögð rík áhersla á að þær hafi sem minnst áhrif á daglegt starf leikskólans og að öryggi barnanna sé tryggt.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Akureyrarbær
Heimild: Akureyrarbær