Stækkun Mjóeyrarhafnar lyftistöng fyrir samfélagið
Mjóeyrarhöfn við Reyðarfjörð mun gangast undir umfangsmikla stækkun sem áætlað er að kosti allt að tíu milljarða króna fram til ársins 2040. Stækkunin er talin mikil lyftistöng fyrir samfélagið á Austurlandi.
Mjóeyrarhöfn við Reyðarfjörð mun gangast undir umfangsmikla stækkun sem áætlað er að kosti allt að tíu milljarða króna fram til ársins 2040. Framkvæmdirnar voru kynntar á íbúafundi á Reyðarfirði í gær og verða unnar í áföngum. Meðal annars er fyrirhugað að lengja hafnarkantinn um rúma fimm hundrað metra og stækka gámasvæðið.
Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, segir stækkunina verða mikla lyftistöng fyrir sveitarfélagið og Austurland allt. Hún bendir á að umsvif fyrirtækja á svæðinu muni aukast með þessum framkvæmdum og að þar með skapist tækifæri til enn frekari aukningar á starfsemi fyrirtækja og flutningum. Þessi uppbygging mun einnig styðja við fjölgun starfa og íbúa á Austurlandi.
Heimild: RÚV