Stækka Kaldalæk í Sjómannagarðinum
Framkvæmdir við stækkun Kaldalæks í Sjómannagarðinum í Ólafsvík eru nú í fullum gangi, en sökkull viðbyggingarinnar var steyptur síðasta föstudag. Verkið hófst í ágúst og er Smiðjan Fönix aðalverktaki. Fyrirtækið hefur ráðið TS vélaleigu til að annas
Framkvæmdir við stækkun Kaldalæks í Sjómannagarðinum í Ólafsvík eru nú í fullum gangi, en sökkull viðbyggingarinnar var steyptur síðasta föstudag. Verkið hófst í ágúst og er Smiðjan Fönix aðalverktaki. Fyrirtækið hefur ráðið TS vélaleigu til að annast jarðvinnu og JT sér um smíði hússins og alla trésmíði.
Viðbyggingin, ásamt tengibyggingu, er 77,7 fermetrar að stærð og mun Kaldalækur því verða um 120 fermetrar eftir að framkvæmdum lýkur. Með stækkuninni fjölgar salernum og meira rými fæst fyrir fundi og minni samkomur. Stefnt er að verklokum í byrjun júní á næsta ári.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Skessuhorn
Heimild: Skessuhorn