Staða framkvæmda á Fannborgarreit og Traðarreit vestur í miðbæ Kópavogs
Uppbygging nýs miðbæjar í Kópavogi er í fullum gangi á Fannborgarreit og Traðarreit vestur, en staða framkvæmda er mismunandi á reitunum. Á Fannborgarreit, sem liggur milli Hamraborgar, Digranesvegar, Vallartraðar og Hálsatorgs, ganga framkvæmdir Man
Uppbygging nýs miðbæjar í Kópavogi er í fullum gangi á Fannborgarreit og Traðarreit vestur, en staða framkvæmda er mismunandi á reitunum. Á Fannborgarreit, sem liggur milli Hamraborgar, Digranesvegar, Vallartraðar og Hálsatorgs, ganga framkvæmdir Mannverks samkvæmt áætlun. Á næstunni verður framkvæmdagirðing færð innar á svæðið og lokið verður við bílastæði. Einnig verður unnið áfram við flokkun og losun steypu. Verktakinn hefur ákveðið að bíða með frekari aðgerðir þar til íbúar hafa fengið skýra kynningu á næstu skrefum, en kynningarfundur hefur þegar verið haldinn fyrir íbúa Gjábakka.
Á Traðarreit vestur, sem afmarkast af Digranesi til suðurs, Neðstutröð til norðurs og vesturs og Vallartröð til austurs, hefur Jáverk ekki hafið niðurrif enda hefur engin heimild til þess verið veitt. Gámar eru þó komnir á reitinn sem hluti af undirbúningi og tengjast hreinsun lausra muna. Næstu skref felast í almennum undirbúningsaðgerðum, svo sem að fjarlægja gróður og númerslausa bíla, og hreinsa rusl innan úr görðum og húsunum til að tryggja öryggi og aðgengi. Garðyrkjudeild Kópavogsbæjar hefur þegar fjarlægt gróður af lóðunum. Einnig stendur yfir undirbúningur að lokun á köldu og heitu vatni og rafmagni í húsunum. Áætlað er að niðurrif geti hafist í júní. Kópavogsbær mun áfram miðla upplýsingum um stöðu framkvæmda.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Kópavogsbær
Heimild: Kópavogsbær