Spyr um stöðu tekjulágra við takmörkun verðtryggðra lána
Fjármála- og efnahagsráðherra hyggst leggja fram frumvarp í haust sem takmarkar lengri verðtryggð lán til að draga úr vægi verðtryggingar. Hagfræðingur HMS telur þetta skynsamlegt en spyr hvort komið verði til móts við þá sem nýtt hafa slík lán til að komast inn á húsnæðismarkað.
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, greindi frá því í Vikulokunum á laugardaginn að frumvarp um að draga úr vægi verðtryggingar verði lagt fram í haust. Ætlunin er að takmarka lengri verðtryggð lán, sérstaklega þau sem skapa hættu á að fólk lendi í neikvæðri eiginfjárstöðu.
Hann nefndi að eftir hrunið hafi margir lent í því að fasteignaverð stóð í stað eða lækkaði á meðan lánin hækkuðu. Vegna þess að höfuðstólsgreiðslur voru lág til að byrja með á löngum lánum, kláraðist eigið fé og fólk festist í eignum sínum. Þetta voru því óheppileg lán og nú sé ljóst að þörf sé á að takmarka þau allra lengstu.
Eitt af því sem til greina kemur er að setja skilyrði um ákveðna lágmarkseignamyndun, sem myndi takmarka jafngreiðslulán til mjög langs tíma. Þetta verður fyrsta skrefið í átt að því að draga úr vægi verðtryggingarinnar.
„Þú afnemur ekki verðtrygginguna eins útbreidd og hún er í íslensku samfélagi eins og út nóttina. Hins vegar klárast þessi vegferð aldrei ef við byrjum hana ekki og við erum svo sannarlega að byrja hana,“ sagði Daði.
Í Þetta helst í dag er sjónum beint að boðuðu frumvarpi ráðherrans og þeirri hugmynd að takmarka lengri verðtryggð lán.
Hagfræðingur HMS telur áform fjármála- og efnahagsráðherra um að draga úr vægi verðtryggðra íbúðalána skynsamleg. Hann spyr hvort komið verði til móts við hópa sem hafa nýtt slík lán til að komast inn á húsnæðismarkað.
Heimild: RÚV