Spennandi framkvæmdir í Grímsnes- og Grafningshreppi
Fjölbreyttar framkvæmdir eru í gangi í Grímsnes- og Grafningshreppi, þar á meðal endurbætur á Kerhólsskóla og bygging nýrrar björgunarmiðstöðvar á Borg.
Fjölbreyttar framkvæmdir standa nú yfir í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Unnið er meðal annars að endurbótum við Kerhólsskóla, byggingu nýrrar björgunarmiðstöðvar á Borg, gatnagerð og uppbyggingu göngu- og hjólastíga.
Miklar breytingar standa yfir á leikskólalóð Kerhólsskóla. Lóðin er stækkuð, yfirborð endurnýjað og nýr kastali ásamt fjölbreyttum leiktækjum settur upp.
Grjótgás og Jóhann Helgi & co sjá um framkvæmdirnar.
Heimild: DFS