Sorpþjónusta hefur hækkað um 104% að raunvirði frá 2008 – Reykjavíkurborg borgar mest og er óánægðust
Kostnaður vegna sorpþjónustu hefur hækkað um 104% að raunvirði frá árinu 2008, sem er nærri tvöfalt hraðar en almennt verðlag. Þetta kemur fram í nýrri úttekt Viðskiptaráðs Íslands á sorpþjónustu sveitarfélaga, sem birt var nýverið. Úttektin varpar ljósi á miklar breytingar á þjónustunni undanfarin ár, með nýrri löggjöf og auknum kröfum um flokkun og meðhöndlun úrgangs.
Árlegur meðalkostnaður heimila vegna sorpþjónustu er 75 þúsund krónur í stærstu sveitarfélögum landsins. Gjöldin eru hæst í Reykjavíkurborg, eða 85 þúsund krónur á ári, en lægst í Reykjanesbæ, þar sem þau nema 62 þúsund krónum. Þessi kostnaður byggir á því að heimili hafi tvær tvískiptar tunnur fyrir blandaðan úrgang, matarleifar, pappír og pappa, auk fasts gjalds vegna grenndargáma.
Samkeppni og ánægja íbúa
Í úttektinni kemur fram að virk samkeppni er í sorphirðu í öllum stærstu sveitarfélögum landsins, að Reykjavíkurborg undanskilinni. Reykjavíkurborg er eina sveitarfélagið sem býður ekki út sorphirðuþjónustu. Þetta endurspeglast í ánægju íbúa með þjónustuna. Í Kópavogsbæ telja 78% íbúa að tæming sorptunna gangi vel, en í Reykjavík er hlutfallið aðeins 37%.
Viðskiptaráð bendir á að umgjörð sorpþjónustu á Íslandi samrýmist illa markmiðum um hagkvæmni og góða þjónustu. Ráðið leggur til að Sorpa verði lögð niður í núverandi mynd og rekstur hennar endurskilgreindur til að stöðva samkeppnisrekstur sveitarfélaga og auka hagkvæmni. Jafnframt er lagt til að sveitarfélög endurskipuleggi sorpþjónustu sína með aukinni samkeppni og markvissari verkaskiptingu.
Sjá nánar: dv.is